Karfan þín

Karfan þín er tóm

Skoða vörur →

Algengar spurningar

Ertu með spurningu? Þá eru ágætis líkur á að þú finnir svarið þitt hér.

Pantanir og greiðslur

Þú velur þær umgjarðir sem þér líkar og smellir á "Velja sjóngler". Þar slærðu inn sjónstyrkinn þinn sem þú hefur fengið frá lækni eða "optíker" skref fyrir skref (SPH, CYL, AXIS og PD) í bókunarflæðinu.

Ef pöntunin hefur ekki farið í framleiðslu er hægt að breyta eða aflýsa henni. Hafðu samband eins fljótt og auðið er á glass@glass.is.

Já, þú færð sjálfkrafa sendan reikning í tölvupósti eftir kaup sem þú getur sent á þitt stéttarfélag eða sjúkrasjóð.

SJÓNGLER OG LINSUR

Við bjóðum upp á sjóngler fyrir styrk á bilinu −10.00 til +6.00 SPH og allt að −4.00 CYL.

Til að gleraugun verði bæði falleg og þægileg er mikilvægt að velja rétta þykkt (Index) miðað við styrk:

  • Index 1.50 (Staðlað): Hentar best fyrir vægan styrk, frá 0.00 til um það bil ±2.00.
  • Index 1.67 (Þunnt gler): Frábært val fyrir miðlungsstyrk, frá ±2.00 til ±4.00. Gerir glerin léttari og fallegri í umgjörðinni.
  • Index 1.74 (Ultra þunnt): Nauðsynlegt fyrir styrk yfir ±4.00 til að forðast þykkar brúnir og halda þyngdinni í lágmarki.

Öll sjónglerin okkar koma með vandaðri glampavörn og rispuvörn sem staðalbúnaði. Bláljósasían er hins vegar sérstök viðbót sem dregur úr birtu frá stafrænum skjám. Við mælum sérstaklega með henni ef þú vinnur mikið í tölvu eða finnur fyrir augnþreytu eftir langan skjátíma.

Best er að hreinsa glerin með volgu vatni og mildri sápu (án krems) og þurrka með hreinum örtrefjaklút. Forðastu að nota eldhúspappír, fatnað eða glerhreinsi sem inniheldur ammoníak, þar sem það getur eyðilagt yfirborðshúðina á linsunum. Geymdu gleraugun alltaf í hulstrinu þegar þau eru ekki í notkun.

Mælingar og ávísun

Sjónmælingar geta litið út fyrir að vera flóknar, en þær snúast aðallega um fjögur gildi:

  • SPH (Sphere): Aðalstyrkurinn þinn. Mínus (-) þýðir nærsýni, plús (+) þýðir fjarsýni.
  • CYL (Cylinder): Segir til um hvort þú sért með sjónskekkju og hversu mikla.
  • AXIS (Öxull): Stefna sjónskekkjunnar, mæld í gráðum (1-180).
  • PD (Pupillary Distance): Fjarlægðin á milli sjáaldranna þinna. Ef þú ert óviss, geturðu einfaldlega sent okkur ljósmynd af mælingunni og við sjáum um afganginn.

PD er einfaldlega fjarlægðin á milli augnsteinanna þinna, mæld í millimetrum. Til að nýju gleraugun virki rétt og sjónin verði hnífskörp, þarf miðjan á glerjunum að passa nákvæmlega við þessa tölu.

Oftast finnurðu PD-ið beint á sjónstyrksskírteininu þínu. Ef það vantar, ekkert stress. Þú getur tæklað það á þrjá vegu:

Mælt það heima: Fylgdu leiðbeiningunum hér á vefnum (tekur innan við mínútu).

Spurt lækninn: Beðið augnlækninn þinn um að gefa þér upp töluna.

Kíkt til okkar: Rennið við hjá okkur á skrifstofuna og við græjum mælinguna á núll einni.

Við mælum með að uppfæra sjónstyrkinn ef hann er eldri en 2 ára. Augun breytast með tímanum og rangur styrkur getur valdið höfuðverk og augnþreytu. Bókaðu tíma hjá augnlækni eða optíker fyrir nýja mælingu.

Pantanir og afhending

Umgjarðir með sérsmíðuðum linsum tekur yfirleitt 7–10 virka daga.

Sólgleraugu og aukahlutir eru send í póstbox samdægurs eða strax næsta dag.

Sending er ókeypis á öll sjóngleraugu og pantanir yfir 15.000 kr.
Annars 990 kr innanlands. Pantanir berast í næsta póstbox.

Já, þú getur valið "Sækja í búð" í greiðsluferlinu. Búðin okkar er á Eyjaslóð 5, 101 Reykjavík (fyrir ofan Ægi Brugghús). Opnunartímar eru neðst á síðu.

Skil og ábyrgð

Við vitum að það getur verið stórt skref að panta gleraugu á netinu. Þess vegna bjóðum við upp á eina ókeypis skiptingu á öllum sjóngleraugum innan 30 daga frá móttöku. Ef umgjörðin smellpassar ekki eða styrkurinn er eitthvað off, þá smíðum við nýtt par fyrir þig frá grunni eða gefum þér inneign í búðinni. Fyrir sólgleraugu og vörur án styrks gildir hefðbundinn 14 daga skilaréttur fyrir endurgreiðslu.

Allar Glass umgjarðir koma með 1 árs gæðaábyrgð gegn framleiðslugöllum. Ef eitthvað bilar á þeim tíma af eðlilegri notkun lagfærum við eða skiptum út án kostnaðar. Ábyrgðin nær ekki yfir slit eða óhöpp.

Fannst þú ekki svarið?

Við erum alltaf tilbúin að hjálpa þér. Sendu okkur skilaboð og við svörum innan 24 klukkustunda.

Hafa samband

Við svörum innan 24 klukkustunda