Karfan þín

Karfan þín er tóm

Skoða vörur →

Það er einfalt að versla á netinu

Við höfum tekið burt alla óþarfa flækju. Þú velur stílinn, slærð inn tölurnar og við smíðum sjónglerin og sendum beint í póstbox.

01

Veldu umgjörðina þína

Skoðaðu úrvalið og finndu umgjarðir sem þér líst vel á.

02

Sláðu inn styrkinn

Sláðu inn styrkinn. Þú færð gildin af sjónstyrksskírteininu þínu — SPH, CYL, AXIS og PD. Þú getur valið um mismunandi glerþykkt og húðun í ferlinu.

03

Við smíðum linsurnar

Við slípum glerin sérstaklega fyrir þig og sendum nýju gleraugun þín í næsta póstbox.

Sjónstyrksskírteinið

Hvernig les ég
skírteinið?

Skírteinið frá augnlækninum þínum lítur svona út. Þú þarft bara fjórar tölur.

Augnlæknastofan
Nr. 2026–0428
26.04.2026
Skjólstæðingur
Jón Jónsson
AugaSPHCYLAXIS
Hægra (OD)−1.75−0.50175°
Vinstra (OS)−2.00−0.2510°
PD · Augasteinafjarlægð63 mm
Dr. Sigurður Á.
SPHSphere

Aðalstyrkur augans. + tala = fjarsýni, − tala = nærsýni.

CYLCylinder

Styrkur fyrir sjónskekkju (ójöfn hornhimna).

AXISStefna

Stefna sjónskekkju í gráðum (1°–180°).

PDPupil Distance

Augasteinafjarlægð — fjarlægð milli augasteina í mm.

Mæla PD heima

Hvernig mæli
ég PD?

Þú getur mælt augasteinafjarlægðina þína sjálf/ur með reglustiku og spegli — það tekur innan við mínútu.

SPEGILL
01 / SKREF

Stattu fyrir framan spegil

02 / SKREF

Haltu reglustiku við nefið

63 mm
03 / SKREF

Mældu frá miðju til miðju augasteina

Meðaltal fullorðinna er 63 mm. Þú getur líka beðið augnlækninn þinn um að mæla það fyrir þig.

Versla umgjörð

Algengar spurningar

Sjóngleraugu með staðalglerjum eru yfirleitt tilbúin til afhendingar innan 7 virkra daga. Fyrir sólgler eða hærri og óvenjulega sjónstyrki sem þarf að sérsmíða getur afgreiðslutíminn lengst um 2–4 virka daga.

Þú getur valið um glær sjóngler, sólgler með sjónstyrk og Transitions XTRActive, sem dökkna sjálfkrafa í birtu og sól. Við bjóðum upp á Staðalgler og Premium gler. Við mælum sjálfkrafa með hentugasta valinu út frá sjónstyrknum þínum.

Grunnhúðun með glampavörn og UV-vörn er alltaf innifalin. Þú getur einnig valið skjágler með bláljósasíu eða hágæða glampavörn með aukinni rispuvörn, minni endurspeglun og yfirborði sem auðveldara er að þrífa.

Já. Við bjóðum ekki enn upp á sjónmælingar og því þarftu að vera með gildan sjónseðil fyrir hvort auga. Þú getur fyllt sjónstyrkinn inn við pöntun og hlaðið upp mynd af sjónseðlinum til staðfestingar. Við bjóðum ekki upp á fjölstyrksgler eins og er.

PD er fjarlægðin á milli sjáaldra og er mæld í millimetrum. Þú getur mælt PD heima með millimetramáli fyrir framan spegil, fengið það mælt hjá sjóntækjafræðingi eða komið til okkar á Eyjaslóð 5, þar sem við mælum það fyrir þig. Leiðbeiningar um heimamælingu birtast einnig þegar þú pantar.

Já. Með Framrúðutryggingu Glass getur þú nýtt eina skiptingu innan 30 daga — jafnvel þótt ástæðan sé einfaldlega að þú fílir ekki gleraugun. Við metum hvað hentar best og útbúum annaðhvort nýtt par frá grunni eða veitum inneign í vefversluninni.

Margir eiga rétt á endurgreiðslu vegna gleraugnakaupa hjá stéttarfélagi eða sjúkrasjóði. Við sendum þér reikning sem þú getur lagt fram með umsókninni. Réttur og fjárhæð endurgreiðslu fer eftir reglum hvers félags.